UMAMI
UMAMI er sushi veitingastaður sem staðsettur er í BORG29 mathöll, í Borgartúni 29 og á Hafnartorgi Gallery.
Við bjóðum aðeins upp á hágæða sushi handgert á staðnum einungis úr fyrsta flokks hráefni. Allur okkar lax er íslenskur landeldislax og er allur okkar matur mjólkur- og hnetulaus.
Fyrir frekari upplýsingar um ofnæmisvalda endilega heyrið í okkur í síma 519-4449
Hvað er Umami?
Umami er ein af fimm grunn bragðtegundunum ásamt söltu, súru, sætu og beisku. Orðið er komið af japanska orðinu Umami (うま味 ) sem lýsir bragðgóðum mat. Einkenni Umami er djúpt bragð sem oft er lýst sem afbrigði af seltu.
Yfirkokkur UMAMI er Axel Clausen en hann var í Kokkalandsliði Íslands og hefur unnið til margra verðlauna.